Stólparnir í stjórnmálunum 1992. Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins og Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins.

Fréttir

Þegar Ólafur Ragnar bað um þjóðaratkvæðagreiðslu í Alþingi

By Miðjan

July 07, 2026

„Ég vil þess vegna nú þegar líður að lokum 1. umr. um þennan samning eindregið beina þeirri ósk til hæstv. ríkisstjórnar að hún hugleiði það á næstu vikum hvort það er ekki skynsamleg og farsæl leið í meðferð þessa máls að fallast á að t.d. í seinni part nóvembermánaðar eða byrjun desembermánaðar fari fram þjóðaratkvæðagreiðsla um þennan samning. Það er margt sem mælir með því,“ sagði alþingismaðurinn Ólafur Ragnar Grímsson, í septmber 1992 þegar rætt var um EES-samninginn á Alþingi.

Ólafur Ragnar var formaður Alþýðubandalagsins og var í stjórnarandstöðu.

„Málið er deilumál hér á Alþingi, málið er deilumál meðal þjóðarinnar, málinu tengjast fjölmörg önnur frumvörp sem gætu orðið erfið í afgreiðslu ef ekki næst samkomulag um það hvernig dómurinn í málinu sé látinn falla. Þjónar það ekki líka hagsmunum ríkisstjórnarinnar að fá úr því skorið með ótvíræðum hætti að vilji þjóðarinnar sé á bak við tillögugerð ríkisstjórnarinnar þannig að öll önnur afgreiðsla málsins verði greiðari?“

Hér er hægt að lesa alla ræðu Ólafs Ragnars.