Stjórnmál

„Þessi ákvörðun er eingöngu valkyrjanna“

By Miðjan

September 24, 2026

Alþingi:

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson:

„Það vekur nokkra furðu mína að hæstv. forseti skuli hér áðan hafa gert smávægilegar athugasemdir við hvernig bæri að ávarpa þingmenn og slíkt en hafi engar áhyggjur af því eða geri engar athugasemdir við það að hæstvirtur menntamálaráðherra skuli hér víkja sér undan og ekki bara það, snúa út úr spurningum og henda ásökunum á aðra þegar fyrir liggur að hæstvirtur ráðherra hefur farið með rangt mál. Í samskiptum við háttvirtur þingmanna Guðmund Inga Kristinsson fyrir afsögn hans sem ráðherra kom fram að það væri ákvörðun valkyrjanna svokölluðu að hann skyldi fara.

„Þessi ákvörðun er eingöngu valkyrjanna“, var sent á háttvirtan þingmann og svo var það undirstrikað með því að árétta að þó að þessi ákvörðun hafi verið tekin vonist menn til að hann fari ekki úr flokknum.

Hæstvirtur menntamálaráðherra hefur hér komist upp með það að víkja sér undan spurningum um það hvort og raunar á hvaða hátt hæstvirtur ráðherra fór með rangt mál og mér þykir það hlutverk hæstvirtur forseta Alþingis að benda á það.“