- Advertisement -

Þjóðin hefur aftur síðasta orðið

Helga Vala gerir athugasemdir við fullyrðingar sem Diljá Mist Einarsdóttir setur fram:

„Rek augun í að þingmaður Sjálfstæðisflokks er mætt á síður MBL til að upplýsa lesendur að „auðvitað sé þetta atkvæðagreiðsla um aðild.“

Af því tilefni fagna ég mjög að inn um lúguna hafi nú borist bæklingur frá Landskjörstjórn, um hvað framundan er.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þar má finna þessar upplýsingar: „Að merkja við „já“ á atkvæðaseðlinum þýðir að kjósandi vill að íslensk stjórnvöld hefji á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið.

Ef meirihluti segir „j“ munu íslensk stjórnvöld leita til Evrópusambandsins um að hefja aðildarviðræður á ný. Þótt aðildarviðræður hefjist hefði það ekki í för með sér að Ísland yrði aðili að ESB, a.m.k. ekki strax, enda þyrfti að stíga ýmis fleiri skref til þess.“ Linkur á innihald bæklingins eru í fyrstu ummælum.

Það verður að segjast eins og er að það er einstaklega óheppilegt að kjörnir fulltrúar blekki almenning vísvitandi í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu, sem er eitt það lýðræðislegasta verkfæri sem við höfum. Með þessari þjóðaratkvæðagreiðslu er þjóðin að veita stjórnvöldum heimild til að ganga til samningaviðræðna við fulltrúa Evrópusambandsins um mögulega aðild Íslands að samstarfi 27 fullvalda ríkja. Vissulega er atkvæðagreiðslan ekki bindandi og því gætu sömu öfl og nú reyna að blekkja þjóðina, kæmust þau til valda á samningstímanum, aftur stöðvað viðræður, en með þessu er verið að spyrja þjóðina hvort hún sé tilbúin til að ræða við þessar þjóðir. Annað ekki.

Í því felst engin skuldbinding. Þjóðin hefur aftur síðasta orðið, ef samningar nást, sem er ekkert víst eins og kemur skýrt fram í upplýsingum frá Landskjörstjórn.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: