Mannlíf

Þögnin má aldrei verða skjól fyrir þá sem fremja þessi ódæðisverk

By Miðjan

October 23, 2026

Kvikmynd:

Þórdís Bjarnleifsdóttir skrifaði:

Ég fór að sjá heimildarmyndina NAZA í Bíó Paradís. Mynd sem situr í mér og ætti að vekja hvern einasta mann til umhugsunar. Myndin byggir á frásögnum einstaklinga innan ísraelska hersins og afhjúpar hryllinginn sem á sér stað á Gaza. Hvernig gervigreind er notuð til að velja skotmörk og auðvelda dráp á fólki. Hvernig mannslíf eru færð niður í tölur, útreikninga og svokallaðan fórnarkostnað. Einn viðmælandinn lýsti því hvernig þetta væri eins og að spila tölvuleik. Honum fannst þetta meira að segja skemmtilegt. Á meðan hann sat við skjáinn og spilaði var raunverulegt fólk að deyja. Börn, foreldrar, heilu fjölskyldurnar. Þarna birtist ein óhugnanlegasta hlið gervigreindar í hernaði. Fjarlægðin frá fórnarlömbunum gerir það auðveldara að aftengja samviskuna. Þú sérð ekki manneskjuna, heldur punkt á skjá. Þú heyrir ekki grát barnsins, heldur færð upplýsingar um skotmark. En gervigreind tekur ekki siðferðilega ábyrgð. Það gera manneskjurnar sem ákveða að nota hana. Tæknin afmáir ekki ábyrgð þeirra sem gefa skipanirnar eða framkvæma þær. Ein af þeim aðferðum sem fjallað er um í myndinni kallast „daddy is home“ og er kerfi notað til að fylgjast með því hvenær einstaklingur kemur heim til fjölskyldu sinnar svo hægt sé að gera árás á heimilið. Heimilið. Staðurinn þar sem börn eiga að vera örugg. Í myndinni er meðal annars sagt frá því hvernig símar eru notaðir til að fylgjast með fólki og staðsetja það. Í einu tilviki var ráðist á heimili þar sem talið var að skotmarkið væri statt. Tuttugu og sex fjölskyldumeðlimir létust. Maðurinn sem átti að drepa lifði af. Hann hafði gleymt símanum sínum heima.

Tuttugu og sex manneskjur. Ein fjölskylda. Þurrkuð út. Og á meðan fylgst var með í gegnum hleranir heyrðust öskrin, örvæntingin og dauðastríðið. Hvernig er hægt að hlusta á slíkt og halda áfram? Hvernig er hægt að réttlæta þetta? Hvenær varð líf saklausra barna og fjölskyldna að ásættanlegum fórnarkostnaði? Viðmælendur myndarinnar voru mislangt komnir í að horfast í augu við eigin þátttöku. Sumir reyndu enn að réttlæta gjörðir sínar. Aðrir virtust gera sér grein fyrir hryllingnum en áttu erfitt með að horfast í augu við eigin ábyrgð. Einn sagði það hins vegar berum orðum. Hann taldi að verið væri að fremja þjóðarmorð og líkti eigin hlutverki við hlutverk nasista í síðari heimsstyrjöldinni. Hann sá engan grundvallarmun á verknaðinum. Það er óhugnanlegt að hlusta á fólk lýsa þessum ódæðisverkum. En enn óhugnanlegra er að vita að þetta er ekki skáldskapur. Þetta er raunveruleiki fólksins á Gaza. Og við megum ekki láta tæknina verða að afsökun fyrir grimmdinni. Það er ekki gervigreindin sem ákveður að mannslíf séu einskis virði. Það eru manneskjur sem taka þær ákvarðanir. Það er ekkert eðlilegt við að sprengja heilu fjölskyldurnar í loft upp. Ekkert réttlætir að börn séu gerð að fórnarkostnaði. Og engin tækni getur þvegið blóðið af höndum þeirra sem bera ábyrgðina. Myndin er átakanleg, en hún er nauðsynleg áminning um hvað gerist þegar mannúð, siðferði og virðing fyrir mannslífum víkja fyrir afmennskun og hernaðarlegum útreikningum. Við getum ekki sagt að við höfum ekki vitað. Og þögnin má aldrei verða skjól fyrir þá sem fremja þessi ódæðisverk.