Stjórnmál

Þórdís Kolbrún „leiðréttir“ Lilju Dögg

By Miðjan

April 10, 2020

Lilja Alfreðsdóttir sætir „leiðréttingu“ frá Þórdísi Kolbrúnu.

Þórdís Kolbrún Gylfadóttir ferðamálaráðherra sendur Lilju Dögg Alfreðsdóttur væna sneið.

„Í Morgunblaðinu í dag er haft eftir ráðherra mennta- og menningarmála að það sé „afar ósennilegt“ að opnast muni fyrir flæði fólks til og frá Íslandi fyrr en hægt verði að bólusetja fólk gegn kórónaveirunni,“ skrifaði Þórdís Kolbrún í gær.

„Þessi ummæli hafa skiljanlega vakið upp alvarlegar spurningar, ekki síst innan ferðaþjónustunnar þar sem mjög alvarleg staða er uppi nú þegar,“ skrifar Þórdís Kolbrún og bætur svo við:

„Að gefnu tilefni finnst mér mikilvægt að það komi fram að það hefur engin ákvörðun verið tekin um þetta enda yrði slík meiriháttar stefnubreyting alltaf kynnt með formlegum og viðeigandi hætti.“