Þórdís Kolbrún nefndi ESB-aðild Íslands í hátíðaræðu sinni á Skálholtshátíð
„Við skulum því ekki þykjast vera of fín til þess að íhuga hvort slík aðild sé valkostur fyrir Ísland. Að sjálfsögðu hlýtur hún að vera það,“ sagði Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, fyrrverandi ráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, á Skálholtshátíð, þar sem hún var ræðumaður.
„Það er svo allt annar handleggur hvort við teljum það vera besta kostinn sem völ er á. Því þurfa allir Íslendingar að fá næði til þess að velta fyrir sér og meta. Hvorug afstaðan er fáránleg og í hvorugri afstöðunni felast svik.
Mestu skiptir að vandað sé til allra verka þannig að sómi sé af fyrir Ísland – og að við sýnum bæði okkur sjálfum og samstarfsþjóðum okkar þá virðingu að tala af yfirvegun og sanngirni, bæði hvert við annað og við umheiminn.“
„Kæri gestir Skálholtshátíðar.
Ég vona að mér fyrirgefist þessi umfjöllun um stöðu alþjóðamála, en svo háttar til að ég er nýlega hætt á þingi og tek við embætti sendiherra eftir hálfan mánuð. Tækifæri mitt til þess að tala alveg frjálst er að renna út – í bili að minnsta kosti.“