
Leiðari Moggans fjallar að vana um husanlegar viðræður Íslands og Evrópusambandsins. Þó einkum um stöðu Þorgerðar Katrínar utanríkisráðherra. Í lok leiðarans segir:
„Ef Þorgerður Katrín býr yfir upplýsingum um hvað sé í boði í mögulegum aðildarviðræðum, hver mörk þeirra eru eða hvaða ríki styðja þær sérlausnir sem hún hefur lýst, ber henni að leggja þær fram áður en þjóðin gengur að kjörborðinu.
Það var hún sem hafði frumkvæði að þessu gönuhlaupi til Brussel, hún hefur keyrt það áfram ein síns liðs í ríkisstjórninni, hún lagði til að Alþingi héldi sig til hlés og eftirléti þjóðinni að fjalla um málið, en stendur svo sjálf í krafti embættis síns í broddi annarrar fylkingarinnar og vill að menn segi „já til að sjá“.
Væri ekki ráð að Þorgerður Katrín leyfði þjóðinni fyrst að sjá, hvert hún vill fara og hvernig? Öðruvísi geta kjósendur ekki tekið upplýsta ákvörðun um tillögu utanríkisráðherra.“