- Advertisement -

Þorgerður Katrín mun aldrei hætta að reyna að troða þjóðinni inn í ESB

Auðvitað er það þannig að næsta ríkisstjórn verður ekki bundin af niðurstöðu þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu eða þeirrar næstu, hvort sem svarið er „já“ eða „nei“.

Andrea Sigurðardóttir.

Andrea Sigurðardóttir blaðamaður á Morgunblaðinu skrifar á Facebook:

„Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagði í Kastljósi í gær að verði niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar „nei“, þá verði málið ekki tekið upp aftur í tíð þessarar ríkisstjórnar. Það var alveg ljóst af máli hennar að hún leit ekki svo á að sú ríkisstjórn sem tekur við af þessari eftir um tvö ár verði í neinu bundin af niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar, segi þjóðin „nei“.

Auðvitað mun Þorgerður Katrín og hennar flokkur, Viðreisn, aldrei hætta að reyna að troða þjóðinni inn í ESB. Það er eftir allt saman það grundvallarmál sem tilvist flokksins byggir á og hann er stofnaður um.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Nú fyrr í þessum
mánuði var
51% orðið nóg…

Í viðtali Chess after dark við Kristrúnu Frostadóttur frá því á sunnudaginn sl. lagði forsætisráðherra aftur á móti áherslu á að þeirri ríkisstjórn sem tæki við bæri að framfylgja vilja þjóðarinnar og halda vegferðinni áfram, jafnvel fullnusta aðild að ESB þvert á stefnur sínar, verði „já“ ofan á. Það var augljóst að í hennar huga væri annað einhvers konar svik við þjóðina – með fyrirvara um að ég man ekki nákvæmlega hvernig hún orðaði það, en þetta var inntakið.

Ekki kom fram í máli Kristrúnar hvort ríkisstjórninni væri skylt að meta nægilegan meirihluta með sama hætti og hún gerir í dag, en sjálf hefur hún sveiflast mjög í afstöðu sinni til þess á skömmum tíma.

Fyrir síðustu kosningar taldi hún óforsvaranlegt að fara í aðildarviðræður nema með um 70% meirihluta. Fyrr á þessu ári (í mars) var hún óviss um hversu mikinn meirihluta þyrfti en að umboðið þyrfti að vera skýrt. Þá vildi hún ekki svara því hvort 51% væri nóg.

„Ég ætla ekki að vera að lýsa því yfir núna nákvæmlega hvaða prósenta skiptir máli. Ég held að það átti sig allir á því að sama hvaða verkefni þú tekur þér fyrir hendur þá skiptir máli að fá skýrt umboð. Það væri auðvitað ákjósanlegra að það væru fleiri en færri sem myndu veita það umboð,“ sagði hún.

Nú fyrr í þessum mánuði var 51% orðið nóg, og nokkru síðar var 50,1% nóg. Svo segir mér hugur að 40 og eitthvað prósent verði nóg til að halda af stað, nái hvorug fylking 50%, en það hafa ekki fengist skýr svör um það.

Í ljósi þess hversu óákveðin Kristrún hefur verið um það hvaða hlutfall þjóðarinnar þurfi til þess að endurvekja löngu svæfða aðildarumsókn, ætlar hún þá að halda því fram að ný ríkisstjórn sé með einhverjum hætti að bregðast þjóðinni, staðfesti sú ríkisstjórn ekki stjórnarskrárbreytingar og undirriti aðildarsamning byggt á naumum meirihluta sem Kristrún taldi fyrir skemmstu óforsvaranlegan þótt aðeins væri vegna viðræðna? Það væri nú aldeilis hræsnin.

…að sækja umboð
sitt til kjósenda
í þingkosningum.

Það er fyrir utan tvískinnunginn sem felst í því að þær stöllur fullyrði í aðra röndina að næsta ríkisstjórn sé ekki bundin af „nei“, en í hina röndina að það verði einhver stórskandall ef næsta ríkisstjórn myndi ekki halda vegferðinni áfram ef svarið verður „já“.

Af þessu að dæma þá er næsta ríkisstjórn aðeins bundin af niðurstöðunni í þeirra huga ef niðurstaðan er sú sem þeim hugnast.

Auðvitað er það þannig að næsta ríkisstjórn verður ekki bundin af niðurstöðu þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu eða þeirrar næstu, hvort sem svarið er „já“ eða „nei“.

Nái Samfylking og Viðreisn (einu ESB-sinnuðu flokkarnir) ekki hreinum meirihluta í næstu þingkosningum verður það umboð sem þær stöllur telja sig hafa úr ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu(m) fyrnt, enda hlýtur niðurstaða nýlegri kosninga að vega þyngra.

Þær þurfa, eins og allir aðrir flokkar, að sækja umboð sitt til kjósenda í þingkosningum.

Það umboð (eða skortur á því) er ekki ráðgefandi eins og í þjóðaratkvæðagreiðslu, heldur bindandi.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: