Greinar

Þrír for­stjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu

By Miðjan

July 15, 2026

„Tveir Norðmenn og einn Íslendingur, forstjórar þriggja sjókvíaeldisfyrirtækja, fengu birta sameiginlega grein hér í Vísi í síðustu viku og kölluðu eftir lagaumgjörð um fiskeldi sem væri samfélaginu öllu til hagsbóta. Við hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum tökum undir þessa ósk forstjóranna,“ segir í grein sem Jón Kaldal, sem er félagi í Íslenska náttúruverndarsjóðnum – The Icelandic Wildlife Fund, skrifar á Vísi.

„Mikið vantar upp á í núgildandi lögum að svo sé. Meira áhyggjuefni er að ef lagareldisfrumvarpið sem atvinnuvegaráðherra lagði fram á nýafstöðnu þingi hefði verið samþykkt hefði þjóðin setið uppi með verstu lagaumgjörð um fiskeldi frá því að Alþingi hóf að setja þessum stóriðnaði lög,“ skrifar Jón.

Greinin er löng og mjög forvitnileg. Hér er örstutt dæmi:

„ Fullyrðing forstjóranna:

„Frá því að fiskeldi í sjó hófst á ný upp úr 2010 hefur greinin tekið miklum framförum.“

Staðreyndirnar:

Hér má lesa greinina alla.