Greinar

„Þvílíkur þvælumálflutningur og raunar til skammar“

By Miðjan

July 29, 2025

Þegar ég birti þetta innlegg um Gaza árið 2023 stóð ekki á svari hjá Stefáni Einari Stefánssyni þáttastjórnanda hjá Morgunblaðinu og fyrrverandi siðfræðingi. Hann sagði eftirfarandi orðrétt við innleggi mínu og ekki vantar kurteisina:

„Þvílíkur þvælumálflutningur og raunar til skammar. Nú er staðfest að Ísraelar sprengdu ekki sjúkrahús. Sprengja frá Islamic Jihad lenti á bílastæðinu þar við hliðina á. Sjúkrahúsið stendur ólaskað. En gott að nytsamlegir sakleysingjar taki málstað hryðjuverkamanna sem nota börnin sín sem mannlega skildi.“