Fréttir

Tímabært að ræða varnarsáttmála ESB

By Miðjan

February 17, 2026

Umræðan/ff7.is: „Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, segir tímabært að virkja varnarsáttmála sambandsins enda verði Evrópa að taka meiri ábyrgð á eigin öryggi. Þetta kom fram í erindi Von der Leyen á öryggisráðstefnunni í München fyrr í dag.

„Gagnkvæm vörn er ekki valkvæð innan ESB,“ sagði hún. „Við erum skuldbundin til að standa saman þegar okkur er ógnað, eða eins og sagt er: einn fyrir alla og allir fyrir einn.“

Von der Leyen hvatti í ræðu sinni til þess að nýtt öryggissamstarf innan ESB verði mótað í samvinnu við nánustu bandalagsríkin: Bretland, Noreg, Ísland og Kanada.“