mbl.is: Tryggvi Þór Herbertsson, stjórnarformaður Qair Iceland H2 og fyrrum alþingismaður, er svartsýnn fyrir hönd milljóna manna:
„Þegar kreppir svona að í framboði á olíu og gasi bitnar það hart á ríkjum sem eru háð innflutningi á olíu, ekki síst fátækari ríkjunum sem ráða illa við miklar verðbreytingar og hafa takmarkaðar varabirgðir af olíuvörum,“ segir Tryggvi Þór Herbertsson, stjórnarformaður Qair Iceland H2.
Tryggvi segir verðhækkanir á olíu vegna Íransstríðsins ógna lífsviðurværi tugmilljóna manna í Asíu. Afleiðingin geti orðið sú að milljónir manna færist úr millistétt í jafnvel sárafátækt.
Tryggvi Þór fylgist vel með orkumálum í Asíu, en hann hefur ferðast reglulega til Asíu og Evrópu á síðustu misserum og haldið fyrirlestra um vetnisþróun fyrir hönd Qair. Hann segir áhrif stríðsins afar mikil.
„Við erum að tala um að milljónir manna munu missa vinnuna og að tugir milljóna, ef ekki hundruð milljóna manna, munu horfa fram á að tekjur sínar helmingist. Afleiðingin verður þá sú að gríðarlegur fjöldi fólks færist úr góðum bjargálnum, getum við sagt, yfir í sárafátækt.“
Högg fyrir ferðaþjónustu
Tryggvi segir ferðaþjónustu verða fyrir miklu höggi.
„Það er nú þegar búið að aflýsa þúsundum flugferða, jafnvel tugþúsundum. Flugmiðarnir verða mun dýrari þegar dregst svona saman og þá fara jafnvel flugfélögin sem eru kannski ekkert of burðug, sérstaklega í fátækari löndunum, einfaldlega á hausinn.“