Greinar

Tvær fullyrðingar – kannski báðar rangar?

By Miðjan

February 15, 2026

Umræðan/Facebook: Hrafn Magnússson skrifaði:

„Nokkur umræða hefur verið á samfélagsmiðlum og blöðum um þá breytingu að tengja ellilífeyrir og örorkulífeyrir við launavísitölu. Umræðan hefur verið sérkennileg og mísvísandi á köflum. Þannig hefur Morgunblaðið birt línurit, sem blaðið segir sé ættað úr fjármálaráðuneytinu, þar sem fullyrt er að lífeyrir almannatrygginga hafi hækkað meira en launavísitalan og er þá miðað við árið 1997 sem upphafsár.

Í sömu frétt blaðsins er því hins vegar staðhæft í umsögn Samtaka atvinnulífsins að tenging lífeyris við þróun launavísitölu sé verðbólguhvetjandi og hafi í för með sér hækkun vaxta. Undir þetta sjónarmið taka tveir valinkunnir hagfræðingar og stjórnarandstaðan á þingi.

Mér er spurn. Af hverju eru Samtök atvinnulífsins og stjórnarandstaðan á móti þessum breytingum því samkvæmt því sem fram kemur í fréttinni hefur lífeyririnn fráTR allt frá1997 hækkað meira en launavísitalan? Hér stangast á tvær fullyrðingar í sömu fréttinni. Báðar væntanlega rangar.“