Alþingi:
Hörð átök í þingsal:
Guðmundur Ari Sigurjónsson, varaformaður Samfylkingarinnar, sagði á þingi nú fyrir skömmu:
„Hér á fyrri kjörtímabilum sat varaformaður Sjálfstæðisflokksins í stjórn og þetta voru svona pólitískt skipaðir fulltrúar sem sátu þarna í stjórninni og maður heyrir í þessari umræðu að þeir hafi greinilega ekki fundað með sínum ráðherrum á þessum tíma.“
Jens Garðar brást við og bar af sér sakir. Hann sagði:
„Hér steig í ræðupúltið áðan háttvirtur þingmaður Guðmundur Ari Sigurjónsson og talaði um að menn ættu að segja sannleikann og fullyrti síðan að varaformaður Sjálfstæðisflokksins hefði setið í stjórn Landsvirkjunar. Það hefði verið pólitísk skipun, varaformaður Sjálfstæðisflokksins. En það er nú bara þannig að þegar ég sat í stjórn Landsvirkjunar var ég ekki kjörinn fulltrúi, hvorki sveitarstjórnar né Alþingis. Ég var varaforstjóri í skráðu fyrirtæki í íslensku kauphöllinni. Það er fyrir neðan allar hellur að menn komi hér upp og fari með svona fleipur og haldi því fram — og háttvirtur þingmaður vissi þetta. Þetta er nú eiginlega bara eins og það sem kemur upp í hugann þegar menn halda svona fram og tala svona, tala um að menn eigi að koma hér upp og segja sannleikann, og það er að vísa veginn en fara hann ekki sjálfur.“