Greinar

UPPSKERAN ER KOMIN Í HÚS

By Miðjan

July 25, 2025

Stefán Ólafsson skrifaði:

Stjórnarandstaðan gekk erinda auðugra útvegsmanna á augljósan hátt og gegn hagsmunum almennings. Beiting 71. greinar þingskapalaga til að stöðva málæðið og blekkingarnar reyndust þjóðinni að skapi – það sýna kannanir.

Í þessu felst mikilvæg lexía fyrir áframhald umbótastarfa stjórnvalda á komandi vetri, t.d. þegar kemur að breytingum á leigumarkaði (takmörkun skammtímaleigu í þéttbýli og takmörkun hækkana á íbúðaleigu, lokun forréttindaglufa í skattkerfinu, frekari útfærslu auðlindagjalda o.fl.). Enginn þarf að óttast frekari beitingu 71. greinarinnar.