
Jóhann Þorvarðarson skrifar:
Þótt þrældómur hyrfi af Íslandi lifði áfram samfélagsgerð sem skerti frelsi margra. Vinnuhjú, leiguliðar, kotbændur og annað fátækt fólk bjuggu við takmarkað efnahagslegt sjálfstæði og þröng lífskjör.
„Saga alþýðunnar er saga ófrelsis í síbreytilegum myndum. Þræðir hennar liggja frá þrældómi og vistarböndum fyrri alda til þeirra skuldafjötra sem einkenna samtímann.
Þótt þrældómur hyrfi af Íslandi lifði áfram samfélagsgerð sem skerti frelsi margra. Vinnuhjú, leiguliðar, kotbændur og annað fátækt fólk bjuggu við takmarkað efnahagslegt sjálfstæði og þröng lífskjör.
Þessir þjóðfélagshópar voru um aldir bundnir vistarböndum við tiltekin héruð eða yfirvald. Þótt vistarbandslög og annað ófrelsi heyri fortíðinni til má finna sambærileg mynstur í samtímanum. Háir vextir og séríslensk verðtrygging hafa haldið fólki í þröngri skuldastöðu og takmarka efnahagslegt frelsi þeirra. Það hefur stuðla að ýmsum samfélagslegum meinsemdum.

29. ágúst stöndum við frammi fyrir vali: að brjóta loks fjötrana með því að segja já og sjá hvað kann að koma út úr samningaviðræðum við Evrópusambandið. Ef einhver er í vafa um að setja X við já ætti hinn sami að kynna sér stöplaritið sem fylgir og bera saman vexti á Íslandi og innan evrusvæðisins. Íbúðavextir á Íslandi eru um þrefalt hærri.
Tveir forystumenn verkafólks hafa lýst afstöðu sem ver þennan vaxtamun, almenningi til óheilla.“