Fréttir

Útgefendur vildu milljarð en fá hálfan

By Miðjan

December 22, 2025

Stjórnarráðið: Úthlutunarnefnd um úthlutun rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla hefur lokið störfum í ár.   Úthlutunarnefnd skipa Anna Mjöll Karlsdóttir lögfræðingur (formaður), samkvæmt tilnefningu Hæstaréttar Íslands, Gunnar Þór Tómasson löggiltur endurskoðandi, samkvæmt tilnefningu Ríkisendurskoðunar og Jón Gunnar Ólafsson, lektor við Háskóla Íslands, samkvæmt tilnefningu samstarfsnefndar háskólastigsins. Fjölmiðlanefnd sá um umsýslu umsókna og veitti úthlutunarnefnd sérfræðiaðstoð vegna þeirra. Alls bárust 30 umsóknir um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla innan umsóknarfrests þar sem samtals var sótt um 1.000.220.781 kr. Til úthlutunar voru 550.000.000 kr. að frádregnum kostnaði vegna umsýslu, auglýsinga, þóknunar fyrir störf úthlutunarnefndar o.fl. sem var um 1,09% af heildarfjárhæð eða 5.979.027 kr. Til úthlutunar voru því 544.020.973 kr.

Fyrr í mánuðinum var tilkynnt um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins. Sjá nánar hér. Umsókn frá einum umsækjanda, Bændasamtökum Íslands, var vísað frá á grundvelli 5. mgr. 62. gr. i laga um fjölmiðla, eins og þeim var breytt með lögum nr. 66/2025, þar sem umsókn barst að umsóknarfresti liðnum og ekki var sýnt fram á gildar ástæður fyrir töfunum. Þá var umsóknum frá Kaffinu fjölmiðli ehf. og Spássíu ehf. hafnað þar sem þær uppfylltu ekki skilyrði 62. gr. g laga um fjölmiðla nr. 38/2011, eins og þeim var breytt með lögum nr. 66/2025. Samkvæmt ákvörðun úthlutunarnefndar hljóta 28 fjölmiðlaveitur rekstrarstuðning árið 2025:

Þessi úthlutun er hluti af framlengingu á styrkjakerfi fyrir einkarekna fjölmiðla sem Alþingi samþykkti að framlengja út árið 2025. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hefur boðað breytingar og viðbætur við styrkjakerfið sem verða innleiddar í áföngum. Sjá nánar hér.