Fréttir

Útgerðin skilur allt að tíu milljarða verðmæti eftir óveidd

By Miðjan

September 07, 2026

Sigurjón Þórðarson, alþingismaður og formaður fjárlaganefndar þingsins, bendir á að mikil verðmæti eru skilin eftir óveidd.

„Það er ljóst að endurskoðun á fiskveiðistjórnunarkerfinu getur gefið ríkissjóði fleiri krónur með því að taka fyrir brask með veiðiheimildir og undirverðlagningu á t.d. loðnu. Nýjar upplýsingar gefa til dæmis skýrt til kynna að veiðiheimildir í ufsa hafi ekki verið veiddar nema að litlu leyti á síðasta fiskveiðiári.

Hér er um að ræða aflaverðmæti upp á um 10 milljarðar króna sem ekki voru veidd og nýtt. Það væri skynsamlegt að breyta leikreglum með þeim hætti að gefa frelsi til veiða á þeim aflaheimildum t.d. í ufa og síld sem að núverandi handhafar veiðiheimildanna hirða ekki um að veiða.“