Útlendingar geta eignast stóran hlut í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum

Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar, skrifaði:
„Geta útlendingar núna eignast stóran eignarhlut í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum? Svarið er já, sem kemur eflaust mörgum á óvart.
Það er talað um hættuna af því að útlendingar eignist sjávarútvegsauðlindina og kvótann ef við verðum fullgildir aðilar að Evrópusambandinu.
Hvert ríki um sig ræður því hvernig það úthlutar veiðiheimildum.
Varðandi auðlindina er þetta rangt því hefðarréttur ræður. Íslendingar hafa einir veitt í íslenskri lögsögu í 50 ár og hafa því einir þennan hefðarrétt. Þetta er tryggt með reglunni um hlutfallegan stöðugleika.
Hvert ríki um sig ræður því hvernig það úthlutar veiðiheimildum. Íslendingar hafa valið kvótakerfi sem hefur reynst farsælt til þess að vernda fiskistofna.
Þá er spurning um þriðju leiðina sem útlendingar gætu farið, það er að kaupa íslensk sjávarútvegsfyrirtæki. Það geta þeir reyndar í dag með krókaleiðum þó sem ég set fram hér á eftir.
Hvað mega erlendir aðilar eiga stóran hlut í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum?
Erlendir aðilar mega ekki eiga beinan hlut í íslensku fyrirtæki sem sjálft stundar fiskveiðar í efnahagslögsögu Íslands. Slíkt fyrirtæki verður að vera í eigu íslenskra aðila eða íslenskra félaga sem uppfylla sérstök skilyrði um erlent eignarhald og íslensk yfirráð.
Erlendir aðilar geta hins vegar átt óbeinan hlut í sjávarútvegsfyrirtæki:
Ef íslenskt félag á meira en 5% í sjávarútvegsfyrirtæki mega erlendir aðilar eiga allt að 25% í því félagi.
Ef íslenska félagið á 5% eða minna í sjávarútvegsfyrirtækinu mega erlendir aðilar eiga allt að 33% í því félagi.
Félag sem á í slíku eignarhaldsfélagi getur sjálft verið að allt að 49% í erlendri eigu, svo framarlega sem íslenskir aðilar eiga meirihlutann, fara með meirihluta atkvæða og hafa raunveruleg yfirráð. Þessi 49% regla var skýrð sérstaklega við setningu laganna.
Dæmi: Útgerðarfyrirtækið A er að fullu í eigu íslenska félagsins B. Erlendir fjárfestar mega eiga 25% í B. Hin 75% í B geta verið í eigu íslenska félagsins C. Erlendir fjárfestar mega síðan eiga 49% í C, en Íslendingar 51% og verða að hafa raunveruleg yfirráð.
Með þessu fyrirkomulagi getur fjárhagsleg hlutdeild erlendra aðila í A orðið:
25% + (75% × 49%) = 61,75%.
Ég veit ekki til þess að útlendingar hafi sóst markvisst eftir slíkri eignaraðild. En þeir gætu gert það skv. núgildandi lögum.“