Sigurjón Þórðarson, alþingismaður og formaður fjárlaganefndar þingsins, skrifaði grein um sjávarútveg innan Evrópusambandsins:
„Einn veigamikill þáttur í útgöngu Breta úr Evrópusambandinu var gríðarleg óánægja með fiskveiðistefnu sambandsins, en almenn óánægja er með stefnuna meðal sjómanna. Í umræðu um ólánlega fiskveiðistefnu ESB er ekki eins og það sé tóm hamingja með íslenska kvótakerfið sem brýtur gegn jafnræði borgaranna og hefur fjölmörg einkenni fiskveiðistefnu ESB, m.a. miðlæga stjórnun með fiskveiðikvótum, uppkaup á veiðiheimildum og algert árangursleysi. Ójafnræðið á Íslandi er það mikið að dæmi eru um að minni aðilar innan greinarinnar telja sig ekki verr setta þó svo landið gangi inn bandalagið
Sjávarútvegur hefur dregist mikið saman í flestum strandríkjum Evrópusambandsins þrátt fyrir aukið eftirlit, hertari reglur og „vísindalegt“ uppbyggingarstarf. Stofnar sem ekki hafa verið veiddir um árabil eru jafnvel taldir ofveiddir. Ofveiðin virðist vera orðin einhver mantra og kapp er hlaupið í „fræðimenn“ við að reikna út ofveiði jafnvel aftur í aldir út frá mjög fátæklegum gögnum, m.a. á síld fyrir 500 árum í Norðursjó. Vægi atvinnugreinarinnar má sín ekki mikils gagnvart sjónarmiðum græna geirans og stórborgarviðhorfa sem líta atvinnugreinina hornauga, vilja setja henni enn frekari skorður og lítið hlusta á þær raddir sem vilja reyna aðrar leiðir, t.d. opna lokuð svæði og auka veiðar.“