- Advertisement -

Vanræksla stjórnvalda og Landakot

Sveinseyrarpóstur Sigurðar G. Tómassonar:

Mesta áhættan í íslenskum sjávarútvegi seinustu áratugina eru fjárfestingar kvótagreifa td í bílaumboðum og bönkum. Að ekki sé nú á það minnst, þegar helv…. skatturinn kemst í eitthvað sem enginn á að vita um!

Augljóst er að vanræksla yfirvalda í áratugi er aðalorsök þess að amk 10 manns dóu vegna covid.  Hve mörg hjúkrunarpláss er verið að útbúa td hér á höfuðborgarsvæðinu? Gamall fráflæðingur á Sveinseyri spyr.

Eitt af því sem mér, amatörnum, finnst sjálfgefið, í kjölfar skýrslu um Landakotssýkinguna, er að alls ekki ætti að setja fólk, sem er í lífshættu vegna veirufaraldursins á stað þar sem margir verða að nota sömu klósettin og sömu böðin. 

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: