Stjórnmál

Vantar okkur sérstakt nefndarhús?

By Miðjan

September 11, 2025

Hér er gripið aðeins í ræðu Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra frá því gærkvöld:

„Dæmi um tiltektarmál á þingmálaskrá eru til að mynda afnám handhafalauna fyrir handhafa forsetavalds, samkvæmt frumvarpi sem ég mun leggja fram, ásamt frumvarpi um eitt nefndahús fyrir nefndir ríkisins, að norrænni fyrirmynd. Þá verður lagt fram frumvarp sem skýrir viðmið við launabreytingar þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna sem unnið er að sjálfsögðu með aðilum vinnumarkaðarins.“