Greinar

Vanvirðing við sjómenn? Hvaða rugl er þetta eiginlega?

By Miðjan

June 12, 2026

Kristján Vigfússon skrifaði þessa fínu grein:

Stjórnmál: Sem fyrrum sjóhundur frá Dalvík þá finnst mér þingmenn sem fæstir hafa migið í saltan sjó leggjast frekar lágt að nýta tækifærið og skáka í því skjóli að það sé vanvirðing við sjómenn og þeirra fjölskyldur að þeir vinni vinnuna sína. Þeir sjómenn sem ég þekki sem eru ófáir bera mikla virðingu fyrir störfum Alþingis og vilja að fólk klári málin- það er fljótt að renna blóð í fiskinn ef hann er ekki blóðgaður, slægður og ísaður – engin pása hér.