Guðmundur Andri Thorsson skrifaði:

„Í gær var tilkynnt um ný samtök sem berjast gegn áframhaldandi aðildarviðræðum við ESB með hugsanlegum niðurstöðum til að leggja í dóm þjóðarinnar.
Í forsvari var Halldór Benjamín sem árum saman var í forsvari fyrir SA. Þau samtök létu líka heyra í sér í gær, aðilar að umfangsmikilli skaðaminnkunaraðgerð vegna rannsókna samkeppnisyfirvalda á samráði oliufélaga um að halda uppi verði á bensíni. Þetta tengist. Nýju samtökin snúast um varðstöðu um slíkt samráð þar sem neytendur – almenningur – eru veiðistofn sem stórfyrirtækin hafa komið sér saman um að skipta á milli sín kvótanum á. Nýju samtökin ganga út á varðstöðu um okurvexti og óðaverðbólgu, og hlutina „eins og við höfum alltaf haft þetta hér“. Varðstöðu um Gamla Ísland.“