Fréttir

Færir vanda Vestmannaeyinga vestur á Breiðafjörð

By Miðjan

June 05, 2026

Illa farið með fólk þegar vandinn er fluttur til

Samgöngur: Breiðafjarðarferjan Baldur er flutt til siglinga milli lands og Heimaeyjar. Ekkert skip kemur í stað Baldurs þar vestra:

„Þetta er bara alveg hræðilegt,“ segir Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar og vísar í máli sínu til fjarveru Baldurs, í viðtali í Mogganum.

Ferjan Særún þjónustar Flatey á Breiðafirði í fjarveru Baldurs.

„Þetta kemur á alversta tíma þar sem ferðaþjónustan er að komast í gang og við erum með afskaplega stuttan glugga af árstíðabundinni þjónustu. Hún er viðkvæm á þessu svæði. Ég hafði samband við Ferjuleiðir í gær og bókunarstaðan var bara mjög góð hjá þeim. Núna eru þeir í því að afbóka ferðir þeirra sem áttu far með bátnum,“ segir Gerður, sem efast um lögmæti þess að kalla Baldur frá Breiðafirði, við Moggann.

„Í samningi við Vegagerðina sé heimild til að nýta Baldur sem varaskip fyrir Herjólf ef Herjólfur fer í slipp eða er óstarfhæfur. Hvorugt eigi við í þessu tilfelli.

Að sögn Gerðar hefur hún því óskað eftir svörum frá Vegagerðinni og Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra um á hverju ákvörðunin sé byggð.“

„Þessi ákvörðun er tekin í rauninni til þess að auka flutningsþörf til Vestmannaeyja og ég hef fulla samúð með vanda Vestmannaeyinga en mér finnst mjög skrýtið að grípa til þess að kippa stoðum undan atvinnugrein hér á Vestfjörðum, og í rauninni bara samfélaginu í Flatey, til þess að bjarga þeirri stöðu sem upp er komin í Vestmannaeyjum,“ sagði Gerður við Moggann.