Greinar

Vel hönnuð atburðarrás Íslandsbankamálsins

By Miðjan

July 06, 2023

Úlfar Hauksson:

„Íslandsbankamálið er dæmi um fullkomna tímasetningu og frábæra vinnu almannatengla við krísustjórnun. Risastórt og glæpsamlegt athæfi sem nær inn í kjarna viðskipta- og stjórnmála. Málið opinberað föstudaginn 23. júní rétt fyrir helgi og rétt fyrir aðal sumarleyfistímann. Atburðarásin í kjölfarið var að mestu algerlega fyrirsjáanleg og vel hönnuð. Nú er málið að mestu horfið og fer líklaga endanlega undir ösku þegar náttúruöflin taka yfir á Reykjanesi.

Við munum svo bara halda áfram að læra voða mikið og fá okkur alveg fullt af banönum…. Njótið sumarsins kæru landar nær og fjær.“