Kjarnyrt:
Þórður Snær Júlíusson skrifaði:
Það er sérstakt afrek að ætla að spara borgarbúum peninga með því að segja upp fólki sem aflar tekna, leggja niður þjónustu sem dregur úr útgjöldum, auka útvistun og selja fyrirtæki í rekstrarhagnaði sem halda líka aftur af verðhækkunum.
Meirihlutinn í Reykjavík virðist þó trúa í blindni á slíkt reikningsdæmi og gaslýsir sig um leið með því að skipta út tölum fyrir pólitískar kreddur. Fólkið sem segir aðra skorta lesskilning virðist nefnilega ekki geta reiknað sér til gagns. Hjá því eru uppsagnir keppnisíþróttin, útvistunin trúarjátningin og eignasalan úrslitaleikurinn.
Reikningurinn lendir hjá borgarbúum, sem fá að borga meira fyrir verri þjónustu í leiðinlegri borg. Velkomin í Reykjavík Hildar Björnsdóttur.