Fréttir

Verðbólga lækkar daginn eftir vaxtahækkun

By Miðjan

November 05, 2026

ff7.is:

Árshækkun vísitölu neysluverðs mældist 0,9 prósent í Svíþjóð í október samkvæmt tölum sem sænska hagstofan birti í morgun. Í september mældist hækkunin 1,1 prósent.

Sænski seðlabankinn horfir til vísitölu neysluverðs þar sem breytingar á vöxtum húsnæðislána eru teknar út fyrir sviga. Sú vísitala lækkaði líka í október, úr 1,5 prósentum í september í 1,1 prósent í október.

Verðbólgumarkmið bankans er 2 prósent en í gær hækkaði hann vextina í 2 prósent og gaf í skyn að þeir kynnu að verða hækkaðir enn frekar.