Stjórnmál

Verðmætasköpunin er grunnur velferðarinnar

By Miðjan

October 23, 2025

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, skrifaði:

„Alvarlegt áfall varð á Grundartanga í vikunni sem snertir ekki aðeins eitt fyrirtæki heldur allt nærsamfélagið og einn af grundvallaratvinnuvegum landsins. Í Norðuráli hefur verið stöðvuð framleiðsla og afkastagetan hefur skerst um tvo þriðju um óákveðinn tíma. Þetta hefur gríðarleg áhrif á fólk og fyrirtæki og þarna tapast útflutningstekjur upp á tugi milljarða.

Þetta alvarlega atvik er því miður áminning um mikilvægi öflugs atvinnulífs enda byggja lífskjör okkar á öflugri framleiðslu og útflutningi. Á Grundartanga verða til verðmæti sem nema umtalsverðu hlutfalli af útflutningstekjum Íslands. Þegar sú lífæð þrengist finnur allt hagkerfið fyrir því.

Við megum ekki gleyma að verðmætasköpunin er grunnur velferðarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn stendur með fólkinu á Grundartanga og í öllum greinum sem halda landinu gangandi. Við stöndum vörð um fjölskyldur og fyrirtækin í landinu, en síðastliðið ár er eina svar ríkisstjórnarinnar að hækka álögur á þessa aðila.

Vegna þessa óskaði ég í gær eftir sérstakri umræðu við hæstvirtan forsætisráðherra um stöðu efnahagsmála. Ríkisstjórnin þarf að svara skýrt: Hvernig verður brugðist við þegar ný áföll dynja yfir, loðnuveiði er óviss, horfur í kolmunna og makríl eru daprar, kísilver PCC á Bakka er lokað tímabundið, um 600 hafa misst störf eftir gjaldþrot Play og hluti starfsemi Norðuráls liggur niðri? Hvernig hyggst ríkisstjórnin verja verðmætasköpun, störf og traust heimilanna?

Við i Sjálfstæðisflokknum biðjum ekki um skyndilausnir, heldur um hreinskilni, skýr svör og ábyrgð. Það er forysta. Það er vegurinn út úr óvissunni.“