Stjórnmál

Verður Bjarni Ben maður ársins?

By Miðjan

December 27, 2023

Tíu eru eftir í kjöri RÚV á manneskju ársins. Flestum að óvörum er Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, meðal þeirra sem eru á endanlegum lista.

„Venju samkvæmt velja kjósendur Rásar 2 manneskju ársins í lok árs. Fyrr í desember gafst fólki færi á að senda inn tillögur og hér að neðan er hægt að kjósa á milli þeirra sem hlutu flestar tilnefningar. Tilkynnt verður um hver hlýtur titilinn manneskja ársins 2023 í þættinum Á síðustu stundu, 30. desember,“ segir á ruv.is.

Hér er listinn.

Eins og sjá má er Bjarni ekki stjórnmálamaðurinn á listanum. Inga Sæland er þar líka.

Ekki er vitað hvað þarf margar tilnefnigar til að komast á tíu manna listann. Nú er að bíða og sjá hvort Bjarni tekst að verða efstur í kjörinu.

-sme