Birgir Dýrfjörð rafvirki skrifar:
Nafngiftin Makkabeus var þekkt í menningu Gyðinga löngu fyrir Kristsburð. Í þeirra huga var Makkabeus heiðursnafnbót á leiðtoga, sem hófst af sjálfum sér til virðingar meðal fólksins.
Dæmi um nútíma Makkabeus er rafvirkinn, sem í skjóli nætur klifraði inn í skipasmíðastöð í Póllandi. Þar ríkti uppnám. Starfsmenn hótuðu verkfalli og stöðin var umkringd her og lögreglu.
Honum tókst að ræða við fólkið, sem herinn hafði umkringt. Hann náði trausti þess, og það valdi
hann sem leiðtoga. Þannig varð Lech Walesa, „Makkabeus“ og forseti Pólverja.
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar. Nýtur nú þeirrar athygli að vera álitin ein af 100 áhrifamestu konu heimsins. Ekki veit ég hvaða mælikvarðar er notaðir til að fá þá niðurstöðu. Ekki eru það yfirburðir vegna stærðar þjóðarinnar eða hernaðargetu hennar.
Því hljóta ætluð áhrif Kristrúnar að felast í viðurkenningu á vitsmunum og forsjálni og yfirburðar hæfileikum til að tala leiðtoga annarra landa og þjóða til skilnings og fylgis við forsjála hugsun sína.
Ég hef engin persónuleg kynni af Kristrúnu Frostadóttur önnur en þau, að fyrir fyrstu Alþingiskosningar sínar kom hún á fund 14 manna uppstillingarnefndar Samfylkingarinnar í Reykjavík og þar sat hún andspænis okkur í nefndinni.
Í framhaldi af því að formaður kynnti Kristrúnu ávarpaði ég hana fyrstur. Ég sagðist vera með spurningar sem ég vildi fá svör við. Þá greip formaður nefndarinnar frammí fyrir mér; nei Birgir ekkert svona sko. Við ætlum ekki að fara í einhverjar stjórnmálaumræður hér.
Ég hreytti út úr mér að við ættum að velja hér fólk til að fara með umboð flokksins á Alþingi. Við verðum að vita hver afstaða þess er í veigamiklum málum.
Þá gerðist nokkuð skemmtilegt. Gesturinn Kristrún, sem hafði setið hljóð og prúð framan við hópinn lyfti hökunni fram ákveðin og yfirtók dagskrárvaldið á samkomunni.
Með sinni skæru og áreitnu rödd tók hún orðið og talaði yfir formanninn.
„Ég vil hafa umræður um þessi mál. Ég vil láta spyrja mig.“
Ég ætla ekki að endursegja ræður Kristrúnar, en ég man vel þegar hún sagði við okkur;
„Fólk, sem fer með vald, fólk, sem tekur ákvarðanir, sem varða aðra. Það á alltaf að spyrja sjáft sig. Hvaða áhrif hefur ákvörðun mín á líf annarra“?
Mikið væri íslensk þjóð betur sett í dag ef ráðamenn hefðu haft það verklag að leiðarljósi.
Nú er Kristrún Frostadóttir orðin formaður Samfylkingarinnar og flestir Íslendingar hafa séð með eigin augum, að þegar hún kveður sér hljóðs og talar þá nær hún allra athygli – hún á salinn.
Sú gáfa er ekki mörgum gefin kannski skýrir hún, að Kristrún Frostadóttir er álitin ein af hundrað áhrifamestu konum heimsins.
Birgir Dýrfjörð, rafvirki.