
Signý Sigurðardóttir:
„Að þessi elíta telji sig hafa heimild til þess að setja fram tölur sem sýna mynd af því að Ísland sé í „afburðadeild“ þegar að velferð hins venjulega manns kemur og nota til þess upphafspunkt sem hentar þeirra málflutningi.“
„Ég snöggreiddist í gær þegar ég áttaði mig hvers konar málatilbúnað elítan í Áfram Ísland hefur sett fram til að rökstyðja mál sitt um að við eigum að segja nei í ágúst.
Ég skil ekki hvernig það getur viðgengist að ég og við „venjulegt launafólk“ á Íslandi þurfi að standa í stríði við elítu sem er með margar milljónir á mánuði í tekjur og veit ekkert um það hvernig það er að þurfa að borga íslenska vexti af húsnæðisláni í hverjum mánuði og að auki verðtryggingu og verðtryggða vexti af námsláni.
Þetta er eitthvað svo stórkostlega rangt og kolgeggjað. Að þessi elíta telji sig hafa heimild til þess að setja fram tölur sem sýna mynd af því að Ísland sé í „afburðadeild“ þegar að velferð hins venjulega manns kemur og nota til þess upphafspunkt sem hentar þeirra málflutningi. Tekur ekki hrunið með í reikninginn – hrunið sem eyðilagði líf okkar margra – leiddi til þess að við áttum ekki sjens eftir það.
Mér er rosalega misboðið.
Mér er rosalega misboðið og mér er alveg nákvæmlega sama þó að það fari í illa í einhvern.
Það er algjörlega morgunljóst í mínum huga að fólk með margar milljónir í tekjur á mánuði hefur enga vigt í þessari umræðu. Enga. Það veit ekkert um það hvernig það er að lifa með íslenskri krónu frá mánuði til mánaðar alla ævina. Hefur ekki hugmynd.
Sú er þetta ritar orðin 63 ára og borgar enn 150.000 af 20 milljóna króna húsnæðisláni og 30.000 kr. af námsláni. Búin að vera á vinnumarkaði alla tíð síðan ég var 15 ára þar til mér var útskúfað eftir hrun en náði mér á strik aftur síðustu tvö ár. Ekki enn komin með milljón á mánuði í tekjur.
Mér finnst það ekki í lagi að hafa þurft að upplifa hrunið á Íslandi fyrir 18 árum síðan og að sama elíta og kom okkur þangað fái að standa í vegi fyrir því að við fáum að eiga sjens á að losna undan krónunni.
Hrunið snerist ekki um „vonda einstaklinga“ eins og margur hefur viljað halda fram. Hrunið snerist um hjarðhegðun og gagnrýnisleysi heils hóps í viðskiptalífi landsins sem leyfði öllu að keyra hér fram af brúninni án þess nokkurn tíma að reyna að stöðva það sem var í gangi.
Þessi hópur virðist nú ætla að koma í veg fyrir að við fáum að eiga möguleika á að breyta efnahagsumhverfi okkar til framtíðar.
Það kemur einfaldlega ekki til mála. Þessi hópur á ekki að hafa neina vigt í þeirri ákvörðun sem framundan er.
Við eigum að fá frið fyrir þeim sem njóta forrréttindanna.
Það er algjörlega morgunljóst og á ekki að þurfa að segja það einu sinni.“
Greinin er fengin af Facebooksíðu Signýjar.