Stjórnmál

„Við erum ekki hrædd við þjóðina“

By Miðjan

March 03, 2026

Alþingi: Þorgerður Katrín svaraði þessari spurningu frá Jens Garðari Helgasyni, varaformanni Sjálfstæðisflokksins:

„Við erum ekki hrædd við að taka mjög erfiðar ákvarðanir sem við þurfum að taka, ekki síst í ljósi þess hvernig mál hafa þróast á umliðnum misserum og árum. Við ætlum ekki að gera það sem fyrri ríkisstjórnir hafa gert, að senda tékkann á framtíðarkynslóðir. Við ætlum ekki að vinna þannig. Það er líka eitt sem mér finnst vera merkilegt sem er að hingað kemur upp varaformaður Sjálfstæðisflokksins, þess sama flokks og lofaði því í kosningunum 2013 ekki að spyrja þjóðina hvort hún vilji ganga í ESB heldur að spyrja þjóðina hvort það eigi ekki að halda áfram með aðildarviðræðurnar. Svo allt í einu er það ekki lengur rétta spurningin af því að einhverjum 13 árum síðar passar það ekki inn í vopna- og orðaforða Sjálfstæðisflokksins.

Alla vega er ljóst að þessi ríkisstjórn er ekki hrædd við þjóðina. Við erum ekki hrædd við þjóðina. Við höfum sagt það mjög skýrt að við munum koma og fyrr en síðar og það verður væntanlega núna á næstu dögum að ég mun fara með þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæði um framhald viðræðna inn í ríkisstjórn. Þingleg meðferð er fram undan. Verið bara tilbúin í þá þinglegu meðferð, opnu, gegnsæju meðferð. Og í guðanna bænum sýnið líka fram á það að þið séuð ekki hrædd við að treysta þjóðinni, af því þetta er ekki flókin spurning: Eigum við að halda áfram aðildarviðræðunum sem voru byrjaðar? Eigum við að fá samning? Eigum við að sjá hvaða hagsmunir — m.a. framtíðarkynslóðir geta legið undir í slíkum samningi, að við séum til að mynda ekki alltaf með þrisvar sinnum hærri stýrivexti hér en annars staðar, alltaf með hærri verðbólgu hér en annars staðar. Skuldum við ekki heimilum landsins þetta, unga fólkinu, að reyna að afla fleiri valkosta? Þetta er mjög einföld spurning. Ég treysti þjóðinni af því að hún veit sínu viti.“