- Advertisement -

„Við getum þetta sjálf, segir Guðrún“

„Lausnirnar á þessu verkefni eru ekki í Brussel.

Þær eru hér heima.“

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, skrifaði:

„Hækkun stýrivaxta eru vond tíðindi fyrir íslensk heimili og fyrirtæki og enn ein áminningin um að ríkisstjórnin hefur ekki náð tökum á efnahagsmálunum. Ríkisstjórn sem var bókstaflega kosin út á loforð um að lækka vexti og verðbólgu.

Að mati Seðlabankans hefur aukning verðbólgunnar fyrst og fremst litast af hækkun opinberra gjalda. Með öðrum orðum, á meðan heimilin glíma við sífellt hærri vaxtabyrði hefur ríkisstjórnin sjálf tekið ákvarðanir sem ýta undir verðbólguna og þyngt róðurinn enn frekar.

Það er ekki hægt að vísa ábyrgðinni annað. En trúið mér, nú mun ríkisstjórnin tala eins og lausnin felist í upptöku evru. Fullkomin uppgjöf á verkefninu.

Við höfum áður sýnt að Ísland getur búið við lága verðbólgu og mun lægri vexti. Það krefst agaðra ríkisfjármála, hófs í álögum og ríkisstjórnar sem hefur stjórn efnahagsmála í forgangi.

Lausnirnar á þessu verkefni eru ekki í Brussel. Þær eru hér heima.

Við getum þetta sjálf. En þá þarf ríkisstjórn sem hefur augun á boltanum.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: