Mynd: Vísir/Vilhelm.

Stjórnmál

Viðreisn verði áfram ein og yfirgefin

By Miðjan

March 10, 2026

Störf þingsins: Snorri Másson var meðal þeirra sem töluðu, í upphafi þingfundar, undirliðnum störf þingsins

„Í gær voru þjóðinni flutt þau stórundarlegu tíðindi að hæstvirtur forsætisráðherra ríkisstjórnarinnar ætlaði ekki að láta svo lítið að flytja eina einustu þingræðu um eitt allra afdrifaríkasta þingmál hér til margra ára, grundvallarmál þessarar ríkisstjórnar,“ sagði Snorri.

Hann var ekki hættur: „Næst kveikir maður á sjónvarpinu um kvöldið, á Silfrinu á RÚV þar sem formenn allra flokka eru boðaðir, nema hvað að það vantar tvo formenn, Ingu Sæland og Kristrúnu Frostadóttur. Er það fyrir tilviljun? Inga er í útlöndum, ég býst við að það sé heppileg tímasetning fyrir hana. En Kristrún Frostadóttir er á Íslandi og hún var í þinginu fyrr um daginn og var í þættinum sögð ekki hafa þorað í Silfrið, sem staðgengill hennar neitaði ekki fyrir.

Allt um það var Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ein send og við það að horfa á hana komu upp einkum tvær tilfinningar; annars vegar var það samúð, að það var sannast sagna átakanlegt að horfa á Þorgerði Katrínu skilda eina eftir á móti öllum að tala fyrir þessari vondu hugmynd. Þessi tilfinning er e.t.v. lýsandi fyrir eina sviðsmynd í málinu; þrautagönguna hér fram undan, ef af aðildarumsókn verður, að Viðreisn verði áfram ein og yfirgefin að tala af veikum mætti fyrir þessu máli í þverklofinni ríkisstjórn, sem er að öðru leyti logandi hrædd við að tjá sig um málið, fyrir utan e.t.v. nokkra óhlýðna aukaleikara í Samfylkingunni. Hins vegar var það tilfinningin sem er hin sviðsmyndin í málinu, þ.e. þessi óþægilegi grunur um það sem gerist næst, að í því tómarúmi sem þögn forsætisráðherra skilur eftir sig stígi fram nýr náttúrulegur leiðtogi þessarar ríkisstjórnar, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, hæstvirtur utanríkisráðherra, með það eitt að markmiði að koma Íslandi í Evrópusambandið.

Virðulegur forseti. Ég hef sagt að ég tel að þjóðinni sé vel treystandi til að komast að réttri niðurstöðu í væntanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu þótt spurningin sé sannarlega villandi. En þessari ríkisstjórn, eins og stjórnarsamstarfið stendur, er ekki treystandi til að leiða þetta verkefni. Það er kannski það eina jákvæða við daginn í gær að þetta kom í ljós strax á fyrsta degi.“