
Þröstur Ólafsson hagfræðingur skrifar:
„Sennilega er það erfiður biti fyrir hluta þjóðarinnar að læra af reynslunni – og draga af henni rökréttar ákvarðanir.“
„Það var lærdómsríkt að fylgjast með Vigdísi forseta þegar hún stóð frammi fyrir því að undirrita EES lagaramman 1994, og hafði mikið af gömlu félögum sínum særandi- og hrópandi – Ekki skrifa undir – Við heimtum þjóðaratkvæði. Hún sagði mér það löngu seinna – og hefur tjáð sig opinberlega, að það sem að lokum reið baggamuninn hafi verið spurningin Evrópa eða Ameríka. Ef ég – sagði hún – hefði sett EES í þjóðaratkvæði ,hefði útkoman geta orðið NEI. Þá væri sú hætta á ferð að þjóðin myndi snúa sér enn frekar vestur um haf. Það vildi hún forðast í lengstu lög. Hún valdi Evrópu.
Í reynd stöndum við frammi fyrir svipuðu vali nú. Sá neikvæði kjarni frá vinstri, sem lagst hafði gegn aðildinni að NATO, varnarsamningnum 1951, þátttökunni í EFTA og af heift gegn EES, hefur nú á ný með sömu slagorðum, skipað sér undir fána hinna eilífu Nei-ara. Þetta ágæta fólk er svo tjóðrað við sína ramm læstu og innantómu heimsmynd að NEI-ið er sennilega á auto pilot í huga þess. Reynsla okkar af öllum fyrrnefndum ákvörðunum í utanríkismálum hefur reynst happadrjúg. Hvar væri Ísland nú statt efnahagsæ- og samfélagslega hefði NEI-ið orðið ofan á 1994? Sennilega er það erfiður biti fyrir hluta þjóðarinnar að læra af reynslunni – og draga af henni rökréttar ákvarðanir.“
Fyrirsögnin er Miðjunnar.