Stjórnmál

Vil á landsfund Sjálfstæðisflokksins

By Miðjan

September 29, 2022

Frá landfundi Sjálfstæðisflokksins.

Sem fullborgandi félagi í Sjálfstæðisflokknum, sem og í nokkrum öðrum flokkum, hef ég óskað eftir að fá að sitja komandi landsfund Sjálfstæðisflokksins.

Almennt brúka ég ekki jakkaföt en til í að kaupa ein sé það skilyrði fyrir fundarsetu.

Vona að kosið verði um formann. Þá fæ ég möguleika til að kjósa Bjarna, eða ekki.

Félagar mínir í flokknum segja einatt að landsfundur sé lýðræðisveisla. Reyndar hefur dregið mjög úr að kjörin forysta flokksins hirði mikið um samþykktir landsfundar.

Bíð spenntur eftir að fá staðfestingu á fundarumsókn minni.

-sme