„Landssamband smábátaeigenda (LS) hefur sent Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra bréf þar sem sambandið hvetur hann til að bæta 200 tonnum af þorski við línuívilnun.
LS lýsir miklum vonbrigðum með að aðeins 300 tonnum hafi verið úthlutað til línuívilnunar og segir þá úthlutun geta grafið undan rekstri fjölda dagróðrabáta. Sambandið telur að afleiðingarnar geti orðið aukin samþjöppun aflaheimilda, verkefnaskortur hjá krókaaflamarksbátum og meiri þrýstingur á strandveiðikerfið.
Í bréfinu bendir LS á að línuveiðar styðji við störf í landi, meðal annars við beitningu, uppstokkun og frágang línu, og styrki byggðafestu í sjávarbyggðum. Jafnframt vísar sambandið til rannsókna MATÍS sem sýni að sótspor línuveiða á þorski á smábátum sé að meðaltali um þriðjungur þess sem mælist við togveiðar. LS hvetur ráðherra til að nýta 200 tonna afgang af veiðiheimildum strandveiðibáta frá síðasta fiskveiðiári til línuívilnunar.“