Fréttir

Vilja ekki fleira flóttafólk

By Miðjan

May 20, 2026

Kosningar: Eru hælisleitendamálin heita kartaflan í þessari umræðu og þora menn varla að lýsa skoðun sinni upphátt um þau eða hvað?

„Það þora því allir í þessu samfélagi. Þetta samfélag er sammála um að þessi mál þurfa að vera í lagi til þess að tryggja öryggistilfinningu bæjarbúa.“

Sjálfstæðisflokkur, með fimm bæjarfulltrúar, og Miðflokkur með einn, ræða myndun eins manns meirihluta. Í viðræðunum eru þessi mál meðal þeirra helstu. Í Mogga dagsins má lesa þetta viðtal við Vilhjálm Árnason, alþingismann og verðandi bæjarstjóra:

Eru hælisleitendamálin heita kartaflan í þessari umræðu og þora menn varla að lýsa skoðun sinni upphátt um þau eða hvað?

„Það þora því allir í þessu samfélagi. Þetta samfélag er sammála um að þessi mál þurfa að vera í lagi til þess að tryggja öryggistilfinningu bæjarbúa.“

Hafið þið séð nóg?

„Já, þetta samfélag í Reykjanesbæ hefur séð nóg,“ segir Vilhjálmur og bætir því við að samtalið sé á réttri leið hjá þeim Gunnlaugi. „Við eigum eitthvað eftir að hittast meira næstu daga og svo ættum við að geta farið að klára þetta,“ segir Vilhjálmur.

Hvenær þarftu að vera búinn að ganga frá þessu?

„Það er ráðgert að fyrsti bæjarstjórnarfundur nýrrar bæjarstjórnar verði 2. júní svo að það er enn nægur tími.“

Miðjan hefur reynt að fá svör frá Vilhjálmi án árangurs.