Stjórnmál: Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í Sonum Egils í gær að hún og flokkurinn hafi vilja til að selja bæði Landsbankann og Leifsstöð:
„Hvers vegna á ríkið að eiga ilmvatnsverslun,“ sagði Guðrún, aðspurð hvort komi til greina að selja Flutstöðina á Keflavíkurflugvelli.
Eins var hún spurð um Landsbankann. Guðrún sagði að hann væri 350 milljarða virði. Og það muni um minna. En þar sem ríkissjóður mun fá fast að 35 milljarða arði greiddan nú, hvort væri þá rétt að selja bankann sem hugsanlega skili 350 milljörðum á tíu árum. „Já,“ sagði Guðrún.
Svo er það það allra viðkvæmasta; Landsvirkjun, má selja hana?
Já, þá einungis til lífeyrissjóða sem þá kaupa með því skilyrði að þeir geti aðeins selt til annarra lifeyrissjóða.
Um þetta allt verður seint einhugur, kannski í Sjálfstæðisflokki.