- Advertisement -

Vill fiskveiðiundanþágur fyrir Ísland

„ESB verði að laga sig að þeim veruleika og bendir Hayer á að nú þegar séu til ólíkar leiðir að aðild. Þannig séu ekki öll ESB-ríkin með evru og sum þeirra standi utan við Schengen-samstarfið.“

Valérie Hayer,
sem fer fyrir þingflokki frjálslyndra flokka á Evrópuþinginu.

„Taka verður upp ný og sveigjanlegri skilyrði um aðild að Evrópusambandinu til að tryggja inngöngu Íslands og annarra líktþenkjandi landa. Þetta er mat hinnar frönsku Valérie Hayer, sem fer fyrir þingflokki frjálslyndra flokka á Evrópuþinginu,“ segir í frétt ff7.is.

„Í pistli sem birtist í Guardian útskýrir hún þessa skoðun sína og bendir á að fiskveiðar og yfirráð yfir landhelginni vegi þyngst þegar kemur að hug Íslendinga til aðildar. ESB verði að laga sig að þeim veruleika og bendir Hayer á að nú þegar séu til ólíkar leiðir að aðild. Þannig séu ekki öll ESB-ríkin með evru og sum þeirra standi utan við Schengen-samstarfið.

Franska þingkonan leggur til að aðild að ESB verði tekin í skrefum í stað þess að verða fullkomnuð strax á fyrsta degi. Löndin geti þannig fengið aðild að innri markaðnum fyrst á meðan aðlögun að stofnun sambandsins eigi sér stað síðar. Hayer segir ljóst að listi umsóknarríkja muni lengjast.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Á vettvangi ESB hefur Hayer verið harður gagnrýnandi Viktor Orbán, fyrrum forsætisráðherra Ungverjalands, og bent á ókosti þess að eitt ríki geti beitt neitunarvaldi. Í pistli sínum í gær kemur hún inn á þetta atriði og segir ekki mögulegt fyrir ESB að starfa með skilvirkum hætti á meðan eitt aðildarland geti staðið í vegi fyrir framförum og stækkun sambandsins.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: