„Spurningin er ekki hvort bankinn eigi að vera sjálfstæður heldur hvort honum hafi verið nægilega vel stýrt. Þar ætti umræðan að vera.“
Jóhann Þorvarðarson skrifar:
„Orð formanns fjárlaganefndar Alþingis hafa vægi og því verður að gera þá kröfu að þau séu sett fram af yfirvegun. Í viðtali við Sigurjón M. Egilsson á Rauða borðinu sagði núverandi formaður meðal annars:
„Ég hefði viljað að það yrðu sett lög á Seðlabankann. Þessi stefna sem er búið að reyna núna, þessi hávaxtastefna, er ekki að gera sig. Ég er talsmaður þess. Aðrir eru í kennslubókinni og telja að Seðlabankinn eigi að hafa sjálfstæði, til að hafa þessa háu vexti sem eru langt umfram verðbreytingar. Ég spyr, hvert er markmiðið með þessu?“
Veikara sjálfstæði
gæti því dregið
úr trausti.
Það er eðlilegt að gagnrýna ákvarðanir Seðlabankans. Það er hins vegar allt annað mál að draga í efa sjálfstæði stofnunarinnar sjálfrar.
Sjálfstæði seðlabanka er ekki markmið í sjálfu sér. Það er tæki til að tryggja að peningastefna landsins mótist ekki af skammtímahagsmunum stjórnmálanna. Kjörnir fulltrúar eiga að ákveða skattastefnu, útgjöld ríkisins og lagaramma samfélagsins. Seðlabankinn á hins vegar að gæta verðstöðugleika og taka ákvarðanir út frá efnahagslegum forsendum fremur en pólitískum þrýstingi og duttlungum.
Sagan gefur fjölmörg dæmi um afleiðingar þess þegar stjórnvöld hafa of mikil áhrif á peningamál. Þegar sama stjórnmálaafl ræður bæði ríkisútgjöldum og verðmyndun peninga skapast hætta á að skammtímasjónarmið vegi þyngra en langtímahagsmunir samfélagsins. Þess vegna hafa flest þróuð ríki á síðustu áratugum kosið að styrkja sjálfstæði seðlabanka fremur en veikja það.
Ef Alþingi myndi skerða sjálfstæði Seðlabanka Íslands er líklegt að það vekti spurningar á innlendum og erlendum fjármálamörkuðum. Fjárfestar leggja mikla áherslu á stöðugar og trúverðugar stofnanir. Veikara sjálfstæði gæti því dregið úr trausti, aukið áhættumat fjárfesta og leitt til hærri fjármagnskostnaðar fyrir íslenska ríkið, fyrirtæki og heimili.
Í stað þess að ræða sjálfstæði bankans ætti athyglin að beinast að þeim sem fara með ákvörðunarvald innan hans og spyrja þeirrar einföldu spurningar hvers vegna bankinn hefur náð svo litlum árangri í baráttunni við verðbólgu sem raun ber vitni. Einnig er eðlilegt að spyrja hvers vegna stjórnendur bankans telji sífelldar vaxtahækkanir vera heppilegasta úrræðið þegar árangurinn hefur verið takmarkaður.
Sjálfstæði
Seðlabankans
er ekki vandamálið.
Reynslan hérlendis bendir til þess að vaxtahækkanir hafi skilað takmörkuðum árangri við að ná verðbólgu hratt niður. Á sama tíma hafa þær aukið vaxtabyrði heimila og fyrirtækja verulega. Þær hafa einnig fært umtalsverðar fjárhæðir frá skuldurum til þeirra sem njóta vaxtatekna. Neyslan hefur því færst til. Afleiðingin hefur verið sú að eftirspurn í hagkerfinu hefur dregist saman hægar en margir vonuðust til, þrátt fyrir háa vexti.
Ef áhöfn hjá útgerð skilar ekki árangri þarf að skipta um skipsstjóra en ekki um vél. Sama á við um Seðlabanka Íslands. Umræðan ætti ekki að snúast um að veikja sjálfstæði bankans heldur um hvort stjórnendur hans hafi náð þeim árangri sem til var ætlast. Ef svarið er nei, þá er eðlilegt að ræða breytingar á forystu bankans fremur en að minnka sjálfstæði hans.
Þarna liggur vandinn sem formaður fjárlaganefndar ætti að beina spjótum sínum að. Sjálfstæði Seðlabankans er ekki vandamálið. Vandamálið er að sjálfstæði eitt og sér tryggir ekki góðan árangur. Það þarf einnig hæfa stjórnendur sem ná árangri.
Að mínu mati hefur árangur undir stjórn núverandi seðlabankastjóra verið ófullnægjandi. Ísland hefur glímt við meiri og þrálátari verðbólgu en önnur Norðurlönd undanfarin ár og árangurinn stenst að mínu mati illa samanburð við það sem sést hefur hjá seðlabönkum nágrannaríkjanna. Þeir sem vilja setja höft á Seðlabankann eru því að beina sjónum sínum að röngum viðfangsefnum. Spurningin er ekki hvort bankinn eigi að vera sjálfstæður heldur hvort honum hafi verið nægilega vel stýrt. Þar ætti umræðan að vera.“