Greinar

Vinnum fyrir venjulegt fólk

By Miðjan

September 26, 2025

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra skrifaði: Ég var í pallborði í dag með forsætisráðherrum Bretlands, Kanada og Ástralíu þar sem við stilltum saman strengi. Víða á Vesturlöndum hafa sósíaldemókratar verið að sigra í kosningum og vinna endurkjör. Það er sveifla með klassískri jafnaðarstefnu á grunni samstöðu. Gegn ysta hægrinu sem elur á sundrungu. Við segjum: Sterk velferð – stolt þjóð. Og það erum við jafnaðarmenn sem gerum þetta best. Svo lengi sem innri áttavitinn er rétt stilltur og við stöndum okkur í vinnunni. Skilum af okkur raunverulegum árangri og breytingum sem munar um fyrir vinnandi fólk í daglegu lífi. Látum ríkið virka. Hristum upp í kerfinu. Um leið og við verndum og varðveitum það sem bindur okkur saman og gerir okkur að þjóð. Ég er stoltur jafnaðarmaður. Og sem forsætisráðherra mun ég alltaf passa upp á Ísland.