- Advertisement -

Vinstri græn gleypa enn einn kúkamolann

Svo mikil andstaða er við þjóðgarð á hálendinu að stjórnarheimilið leikur á reiðiskjálfi. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins spyrna við fótum. Í orði hið minnsta. Held að það séu þeir sömu og krepptu hnefann framan í orkupakkann. Sem þeir kokgleyptu fáum vikum síðar. Það sem þeim áður þótti ógerningur varð síðar framfaraskref í huga þeirra. Svo sögðu þeir hið minnsta.

Eins og áður hefur komið fram hér á Miðjunni hefur böndum verið komið á Davíð Oddsson. Hann gekk nærri Sjálfstæðisflokki með endurtekinni gagnrýni. Í dag er hann dreginn á flot. Hann skrifar í leiðara:

„Aug­ljóst er, þegar þau sjón­ar­mið sem um­hverf­is­ráðherra hef­ur sett fram eru skoðuð, að meg­in­mark­miðið með þjóðgarði sem spann­ar allt há­lendi lands­ins er að koma í veg fyr­ir frek­ari virkj­an­ir á svæðinu. Öðrum mark­miðum mætti ná fram á ann­an hátt.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Nýjar fréttir daglega.

Þetta er einmitt málið. Vinstri græn leggja alla áherslu á umhverfismálin og þar er þjóðgarðurinn stóri flaggskipið. Þingmenn eins og Jón Gunnarsson og Páll Magnússon, svo einhverjir séu nefndir, tala fast gegn áformunum. Nú stefnir í átök milli þingmanna Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna. Deigt er í báðum fylkingum.

Fram undan eru einhvers konar átök. Fyrir fram má gera ráð fyrir sigri Sjálfstæðisflokksins. Að vinstri græn kyngi einum kúkamolanum í viðbót.

-sme


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: