Greinar

Vinstri græn verja kvótagreifa

By Miðjan

February 16, 2021

Í morgun var mér hugsað til Jónasar heitins Kristjánssonar. Fór inn á jonas.is. Þar er þetta að finna. Á mjög vel við það sem nú er að gerast í íslenskum stjórnmálum. Skrifað í júní 2018:

Vinstri græn eru fremst í vörn fyrir frumvarpi um lækkun auðlindarentu á greifa sjávarútvegs. Lilja Rafney Magnúsdóttir segir lækkunina munu hindra gjaldþrot smáútgerða. Samt nemur arður kvótagreifa hundruðum milljarða og kallar á hækkun rentunnar fremur en lækkun. Eðlilegast væri þó að hætta þessu sífellda rifrildi um rentuna og bjóða fremur út veiðileyfin á frjálsum markaði. Leyfa markaðinum að stjórna, hversu mikið greifar vilja borga fyrir leyfin. Núverandi kerfi sogar hundruð milljarða árlega út úr þjóðfélaginu. Gerir því ókleift að standa undir sómasamlegum lágmarkslaunum, örorku og ellilaunum, svo og ókeypis heilsukostnaði