Skoðanakönnun: Ný skoðanakönnun um fylgi flokka og framboða í Reykjavík var að birtast. Samfylkingin fengi mest fylgi ef kosið yrði til borgarstjórnar nú, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu. Fylgi hennar og Sjálfstæðisflokksins minnkar milli kannana meðan fylgi Miðflokksins er enn á uppleið.
Meirihlutinn er kolfallinn, með aðeins Flokkarnir í meirihlutasamstarfniu fá samtals aðeins 42 prósent.
24,0 prósent segjast myndu kjósa Samfylkinguna, 2,1 prósentustigi minna en í síðasta mánuði. Sjálfstæðisflokkurinn fengi atkvæði 22,7 prósenta, 1,7 prósentustigum minna en í janúar.
Viðreisn missir um eitt prósentustig milli mánaða, 13,5 prósent myndu kjósa flokkinn nú.
Miðflokkurinn bætir við sig einu prósentustigi og fengi 11,1 prósent.
Vinstrið, sameiginlegt framboð Vinstri grænna og Vors til vinstri, fengi 9,1 prósent atkvæða og Píratar 5,5 prósent. Framsóknarflokkurinn mælist með aðeins meira fylgi en áður og fengi nú 5,1 prósent.
3,7 prósent myndu kjósa Sósíalistaflokkinn og 3,4 prósent Flokk fólksins. 1,2 prósent myndu kjósa Okkar borg og 0,6 prósent annað.
Maskína lagði könnunina fyrir Þjóðgátt Maskínu dagana 1. til 27. febrúar og tóku 1.015 afstöðu til flokks.
Sterk byrjun hjá Vinstrinu sem mælist með 9,1% fylgi í borginni, segir Sanna Magdalena Mörtudóttir.