Vítakeppnin fyrst – svo framlengingin
Stefán Pálsson, sagnfræðingur og knattspyrnuáhugamaður hefur komið fram með frábæra hugmynd, sem hér er tekið undir. Stefán skrifaði:
„Það er fastur punktur á stórmótum í fótbolta, eftir því sem vítaspyrnukeppnunum fjölgar, að fólk fari að ræða hversu grimmdarleg leið það sé til að fá úrslit í fótboltaleikjum. Enginn vill vera maðurinn sem klúðrar vítakeppni.
En ég sá snjalla hugmynd til lausnar á þessu. Hún er á þá leið að láta vítakeppnina fara fram á undan framlengingunni. Sigurliðið fær hálft mark. Fyrir vikið eiga þau sem tapa vítakeppninni færi á að knýja fram sigur – og jafnframt yrði framlengingin enn æsilegri því allan tímann verður annað liðið að sækja til sigurs. Skotheld hugmynd!“