Vöruútflutningur frá Íslandi hefur aukist frá því í fyrra en samt hefur vöruskiptahalli aldrei verið meiri en nú. Þetta skýrist af stórauknum vöruinnflutningi, einkum á tölvubúnaði í tengslum við uppbyggingu gagnavera. Ferðaþjónustan hefur skilað auknum tekjum í ár en á móti hefur utanlandsferðum Íslendinga fjölgað og uppsafnaður kortaveltujöfnuður við útlönd var enn neikvæður í lok júlí.
Á árunum fyrir heimsfaraldurinn sótti ferðaþjónustan hratt í sig veðrið og þó nokkur afgangur varð af þjónustuviðskiptum. Afgangurinn vó á móti halla á vöruviðskiptum og skilaði í heild töluverðum afgangi af vöru- og þjónustuviðskiptum.
Frá árinu 2020 hefur tvisvar mælst afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum, árin 2022 og 2023. Halli af vöruviðskiptum hefur nú aukist töluvert, sérstaklega frá árinu 2022 og afgangur af þjónustuviðskiptum hefur smám saman náð sér aftur á strik en ekki aukist að neinu ráði. Á sama tíma hefur innflutningur, bæði á vörum og þjónustu, færst í aukana. Því mælist nú almennt meiri halli á vöruviðskiptum en áður og minni afgangur af þjónustuviðskiptum.
Vöruútflutningur eykst – sérstaklega á áli og fiski Þessi þróun hefur verið greinileg það sem af er þessu ári, sérstaklega í vöruviðskiptum, þar sem aldrei hefur mælst meiri halli en nú. Hallinn skýrist ekki af minni vöruútflutningi – hann hefur aukist í nær öllum vöruflokkum. Útflutningsverðmæti áls og álafurða hafa aukist mest, en þar hefur líklega mest áhrif að í fyrra dró úr framleiðslu vegna raforkuskerðinga. Í ár hefur ekkert þurft að grípa til skerðinga og sé tekið mið af stöðu miðlunarlóna, sem hefur sjaldan verið betri, eru litlar líkur á því út árið. Útflutningsverðmæti sjávarafurða hafa einnig aukist á árinu sem má að miklu leyti rekja til hærra verðs á botnfiski. Þannig hafa færri tonn af þorski verið flutt út á árinu en þrátt fyrir það skilað auknum útflutningsverðmætum. Þá hefur einnig verið kraftur í útflutningi á eldisfiski á árinu.
Athygli vekur að töluvert hefur hægt á útflutningi lyfja og lækningavara frá því í apríl á þessu ári, en frá ársbyrjun hafa þó útflutningsverðmæti aukist um rúmlega 13% á föstu gengi. Enn sem komið er hafa innflutningstollar ekki verið lagðir á lyfjainnflutning til Bandaríkjanna og stærstur hluti þeirra lækningavara sem Ísland flytur til Bandaríkjanna er einnig undanskilinn tollum.