Kosningar: Sanna Magdalena Mörtudóttir, núverandi forseti borgarstjórnar og borgarstjóraefni Vinstrisins, mælist með yfirburða traust skv. nýrri skoðanakönnun. Fylgi framboðsins er með ágætum. Stefna örugglega í þrjá borgarfulltrúa. Ef vel tekst til verða þeir líklega fleiri.
Óðum styttist til byggðakosninganna, sem verða 16. maí n.k. Margt á eflaust eftir að gerast á endasprettinum. Kannanir um fylgi eru oft áhugaverðar. Þegar fólk var spurt um traust til oddvita framboðanna í Reykjavík kemur glöggt í ljós að Sanna Magdalena nýtur langmests fylgis.