- Advertisement -

Yfirvöld verða að láta af kerfisbundinni fátækra- og útlendingaandúð sinni

Dauði fólksins í brunanum við Bræðraborgarstíg verður að vekja fólk til vitundar um þá kúgun sem viðgengist hefur í samfélaginu

Borgarstjórnarflokkur sósíalista vottar aðstandendum þeirra sem létust í brunanum við Bræðraborgarstíg djúpa samúð. Dauðinn er ætíð ósanngjarn og grimmur en dauðsföll sem hefði mátt fyrirbyggja, manntjón vegna aðgerðarleysis yfirvalda gagnvart kúgun hinna fátæku og valdalitlu, vekja upp viðspyrnu og kröfu um réttlæti. Borgarstjórnarflokkur sósíalista krefst þess að þau sem létu líf sitt í eldsvoðanum við Bræðraborgarstíg fái réttlæti í formi viðurkenningar yfirvalda á aðgerðarleysi sínu gagnvart kúgun innflytjenda í láglaunastörfum og aðgerða sem tryggja að þeirri kúgun linni og fólki verði ekki framar gert að búa við óöryggi, ótta og ósæmandi kjör og aðstæður.

Dauði fólksins í brunanum við Bræðraborgarstíg verður að vekja fólk til vitundar um þá kúgun sem viðgengist hefur í samfélaginu og af hálfu yfirvalda. Braskvæðing húsnæðismarkaðar og vinnumarkaðar hefur átt sér stað með stuðningi yfirvalda og oft beinni aðkomu þeirra. Þrátt fyrir háværar kröfur um umbætur frá almenningi, fjölmiðlum, verkalýðsfélögum og öðrum fulltrúum almennings þá hafa yfirvöld ekki brugðist við, hvorki ríki, borg eða önnur sveitarfélög. Og þegar á hefur reynt hafa stjórnvöld og dómstólar verndað braskarana en ekki fólkið sem þeir níðast á eða þau sem reynt hafa að berjast fyrir bættum aðbúnaði og kjörum innflytjenda. Þessu verður að snúa við. 

Yfirvöld verða að láta af kerfisbundinni fátækra- og útlendingaandúð sinni. Það verður ekki gert nema yfirvöld, þar með talin borgaryfirvöld, gangist við ábyrgð sinni. Þrátt fyrir fjölmargar ábendingar, skýrslur og úttektir sem dregið hafa fram óbærilegar aðstæður sem láglaunafólk og annað fátækt fólk býr við á húsnæðismarkaði og þrátt fyrir að bent hafi verið á að innflytjendur væru í sérstaklega veikri stöðu vegna veikrar félagslegrar stöðu og hversu háð þau eru launagreiðendum og húseigendum, þá hafa borgaryfirvöld ekkert gert, frekar en önnur yfirvöld. Þetta sinnuleysi er ekki tilviljun. Það er afleiðing af kerfisbundnum fordómum og mismunun gagnvart varnarlausu fólki, valdalausu og fátæku. 

…og vörn gegn braskvæðingu húsnæðismarkaðarins í borginni.

Stjórnvöld sem nú stíga fram og ræða nauðsyn þess að fara yfir brunavarnir og ferla innan kerfisins skilja ekki vandann. Kerfið sjálft er vandinn. Það þarf að breytast. Fólkið sem tekið hefur ákvarðanir um að sinna engum aðvörunum og ábendingum um kúgun hinna verst settu verður að gangast við sinni ábyrgð. Það er frumskilyrði þess að réttlætið nái fram að ganga. Það næst ekki fram ef fólk kastar frá sér ábyrgð.

Borgarstjórnarflokkur sósíalista leggur til að þegar verði skipað innflytjendaráð í Reykjavík þar sem sæti eigi innflytjendur í láglaunastörfum og í veikri stöðu á húsnæðismarkaði til að leggja fram tillögur til úrlausna. Innflytjendaráðið starfi með umboðsmanni innflytjenda sem ráðinn sé úr hópi innflytjenda til að gæta hagsmuna þeirra innan borgarkerfisins og tryggja að rödd þeirra heyrist hátt og skýrt í samfélaginu.

Borgarstjórnarflokkur sósíalista leggur til að Reykjavíkurborg styrki Leigjendasamtökin með því að leggja til húsnæði undir starfsemina og rekstrarkostnað miðað við tvo launaða starfsmenn svo leigjendum takist að byggja upp hagsmunabaráttu sína og vörn gegn braskvæðingu húsnæðismarkaðarins í borginni.

Borgarstjórnarflokkur sósíalista krefst þess að yfirstjórn Reykjavíkurborgar gangist við ábyrgð sinni á húsnæðisvanda innflytjenda og annara fátækra borgarbúa og viðurkenni að húsnæðisleysi hinna fátæku byggir ætíð á sinnuleysi yfirvalda.

Borgarstjórnarflokkur sósíalista krefst þess að Reykjavíkurborg opni eitthvað af lokuðum íbúðahótelunum í borginni og hýsi fólkið sem varð húsnæðislaust við brunann við Bræðraborgarstíg og að það fólk sem býr í dag við aðstæður sem það telur hættulegar. Það er ekkert húsnæðisleysi í Reykjavík, aðeins sinnuleysi borgaryfirvalda gagnvart neyð hinna fátæku og valdalausu.

Auk þess leggur borgarstjórnarflokkur sósíalista til að yfirstjórn borgarinnar láti ekki braskvæðingu hugarfarsins stjórna öllum aðgerðum sínum og aðgerðarleysi. Fyrsta skylda borgaryfirvalda er að tryggja hinum valdalausu og fátæku öryggi og vernd. Borgaryfirvöld hafa brugðist þessari skyldu sinni.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: